Hvert er uppáhalds framlag þjóðarinnar í Eurovision?
March 28, 2026
RÚV
Hinum glænýja skemmtiþætti Góðir Íslendingar er ætlað að sameina íslenskt grín og tónlist auk þess sem þáttarstjórnendur kafa ofan í íslenska menningu með húmor og lifandi stemningu að leiðarljósi. Allt verður þetta í beinni útsendingu fyrir fullum sal af fólki og ljóst að allt getur gerst. Í þáttunum verða sýnd upptekin atriði í hæsta gæðaflokki í bland við leikin atriði í beinni útsendingu ásamt lögum sem allir þekkja, í nýjum búningi.Hildur Vala Baldursdóttir leikkona er aðalstjórnandi þáttanna og hefur með sér fjölbreyttan hóp landsþekktra skemmtikrafta í hverjum þætti.
Tónlistarstjórn er í höndum Magnúsar Jóhanns og leikstjórar eru Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson sem stóðu meðal annars að Áramótaskaupinu 2025 og IceGuys-þáttunum.Það er mikil áskorun og mjög skemmtilegt að þróa þennan stóra sjónvarpsviðburð í samstarfi við RÚV. Við lítum á þetta sem nýsköpun í íslensku sjónvarpi þar sem tónlist, lifandi grín og skemmtilegasta fólk landsins kemur með sannkallaða laugardagsskemmtibombu. Við ráðumst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, bein útsending sex laugardagskvöld í röð á stærsta sviðinu, en við erum umkringdir hæfileikafólki á öllum póstum og það róar aðeins taugarnar sem eru engu að síður vel þandar, það verður að viðurkennast,“ segir Hannes Þór Halldórsson.Taktu þátt í kosningunni um besta framlagið og mestu vonbrigðinNú þurfum við þína aðstoð, kæra þjóð. Við viljum vita hvað ykkur finnst og fyrir hvern þátt birtum við spurningakönnun til að greina mat þjóðarinnar. Nú er það saga Íslands í Euruvision sem er til umfjöllunar og hér fyrir neðan getið þið greitt atkvæði um mestu vonbrigðin, eftirminnilegasta atriðið og vanmetnasta framlagið svo eitthvað sé nefnt.KJÓSIÐ HÉR!
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.