Hver er þessi dymbill?
March 31, 2026
RÚV
Þessi vika, frá pálmasunnudegi fram á laugardag fyrir páska, á sérstakt heiti sem hefur litla skírskotun til nútímans og ekki allir vita hvert er. Þjóðfræðingur segir þó ólíklegt að hún fái nýtt nafn.Vikan fyrir páska var í kaþólskum sið gjarnan nýtt til íhugunar. Þá átti að halda sig til hlés og takmarka hávaða.Það mátti ekki hringja kirkjuklukkunum,“ segir Dagrún Ósk Jónsdóttir, aðjúnkt í þjóðfræði við Háskóla Íslands.Tréáhald eða kertastjakiOg þá þurfti að leita leiða til að dempa hljóð klukknanna.
Áhald sem var notað til að framkalla annars konar hljóð. Úr tré,“ segir Dagrún.Það er ein skýringin á nafni vikunnar. En þær eru fleiri. Eða þá að þetta tengist því að ljósin hafi verið slökkt, slökkt á kertum og að þetta hafi verið kertastjaki eða annað áhald til að slökkva á þeim.“Vikan heitir eftir trékólfiAllur gangur var á því hvort fólk sem fréttastofa hitti á förnum vegi vissi undir hvaða heiti þessi vika gengur, eða hvers vegna það er. En heitið er semsagt dymbilvika og þar er vísað í dymbil sem er trékólfur sem var komið fyrir í kirkjuklukkum í vikunni fyrir páska svo hringingin yrði lægri og dimmari. Slíka kólfa má finna á söfnum, meðal annars á Byggðasafni Hafnarfjarðar.Heiðrún Eva Konráðsdóttir sérfræðingur á safninu, segir að dymbill safnsins hafi verið gjöf frá kaþólsku kirkjunni í Hafnarfirði. Hann virðist hafa verið í notkun lengi, veit ekki hversu gamall hann er. En eitthvað nær hann aftur,“ segir Heiðrún.Píningarvika, helga vika og kyrravikaEn vikan hefur ekki alltaf heitið dymbilvika, að sögn Dagrúnar. Dymbilvika er með eldri nöfnunum, dymbildagar koma fram í heimildum mjög snemma, á 14. öld,“ segir hún. Dymbilvika á 16. öld. En það eru önnur heiti eins og t.d. píningarvika, helga vika og kyrravika sem mér finnst mjög fallegt heiti líka á þessa viku.“Engin ástæða til að senda út tilskipunDymbill er ekki eitthvað sem við notum dagsdaglega og fæstir sem vita hvað það er: væri tilefni til að endurskoða nafnið á þessari viku? Það er mjög góð spurning. Ef fólk hættir að kalla þetta dymbilviku og fer að kalla þetta eitthvað annað, þá verður breyting á. En ég held að það sé engin ástæða til að senda út einhverja tilskipun um að nota eigi annað orð,“ segir Dagrún.Píningarvika, helga vika og kyrravika - allt eru þetta heiti sem þessi vika, vikan fyrir páska, hefur borið í gegnum tíðina. Misjafnt er hvort fólk viti að hún á sér nafn sem hefur litla skírskotun til nútímans.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.