Hvasst og blautt
April 8, 2026
RÚV
Rok og rigning verður sennilega hugtakið sem koma upp í huga margra í dag – þótt strangt til tekið sé það ekki rok heldur bara hvassviðri samkvæmt Beaufort-kvarðanum. Það breytir því ekki að hvasst verður víðast hvar um landið og rigningarskúrir um landið sunnanvert. Norðlendingar ættu þó að sleppa við rigninguna.Það hvessir aftur á morgun áður en veður róast framan af föstudegi.
Það verður þó skammvinnt gaman því næsta lægð kemur upp að landinu suðaustanverðu undir kvöld á föstudag.Suðaustan 13-20 með rigningu, en suðlæg átt, 8-15 og skúrir með morgninum. Þurrt að mestu á Norðurlandi seinnipartinn. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast fyrir norðan.Suðvestlægari með skúrum eða éljum annað kvöld, en úrkomulítið austanlands. Hiti 1 til 6 stig.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.