Hvaða skóli verður handhafi hljóðnemans?
World

Hvaða skóli verður handhafi hljóðnemans?

April 10, 2026
RÚV
Scroll

Verzlunarskóli Íslands og Menntaskólinn í Reykjavík mætast í úrslitaviðureign Gettu betur í kvöld. Úrslitakeppnin hefst klukkan 19:45 og von er á hörkuspennandi viðureign.Lið Verzlunarskólans skipa þau Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann.Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa þau Hulda Filippía Andradóttir, Dóróthea Margrét Jakobsdóttir og Davíð Friðriksson Magnus.Menntaskólinn í Reykjavík er sá skóli sem oftast hefur sigrað keppnina, alls 23 sinnum.

Hvaða skóli verður handhafi hljóðnemans?

Verzlunarskóli Íslands hefur þó aðeins sigrað keppnina tvisvar sinnum.Skólarnir mættust seinast í úrslitum keppninnar árið 2010, það ár bar MR sigur úr bítum.Síðastliðin tvö ár hefur Menntaskólinn við Hamrahlíð unnið keppnina. Menntaskólinn í Reykjavík vann keppnina seinast árið 2023 og Verzlunarskólinn árið 2021.Spyrill í ár er Helga Margrét Höskuldsdóttir og henni til halds og trausts eru spurningahöfundarnir, Vilhjálmur B. Bragason, Arnar Gunnarsson og Sigurlaugur Ingólfsson.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More