Hútar gerðu árásir á Ísraela í nótt
March 29, 2026
RÚV
Uppreisnarher Húta í Jemen gerði tvær eldflaugaárásir á Ísrael í nótt og þeir hóta frekari árásum. Óttast er að stríðið í Mið-Austurlöndum eigi eftir að breiðast út en fjölmiðillinn The Washington Post segir að Pentagon, bandaríska varnarmálaráðuneytið, sé að undirbúa landhernað gegn Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti eigi þó enn eftir að samþykkja aukningu herafla til Mið-Austurlanda.Afskipti Húta eru talin auka enn á óstöðugleika í þessum heimshluta.
Á meðan Ísraelar gerðu árásir á Palestínu á tímabilinu nóvember 2023-janúar 2025, réðust Hútar á um 100 skip í Rauðahafinu og Adenflóa, samkvæmt umfjöllun tímaritsins Time um Húta. Með árásunum vildu Hútar sýna stuðning sinn við málstað Palestínu. Fjölmörg skipaflutningafyrirtæki neyddust til að sigla lengri og kostnaðarsamari siglingaleiðir vegna árásanna.Afskipti Húta af stríðinu í Mið-Austurlöndum nú veldur því mörgum áhyggjum um að þeir hefji sambærilegar árásir aftur á skip í Rauðahafi. Slíkar árásir gætu haft enn meiri áhrif á olíuflutninga og skipaumferð í þessum heimshluta.Hútar hafa verið virkt stjórnmálaflokkur og uppreisnarher frá upphafi þessarar aldar. Uppreisnarherinn nýtur stuðnings Írana, þótt hann gangi ekki einungis erinda Írans. Þeir beita sér mest í Jemen og náðu höfuðborg Jemen, Sanaa, á sitt vald árið 2014. Upp frá því braust út mikil borgarastyrjöld í landinu og Hútar stjórna nú að miklu leyti norðurhluta Jemen. Íranar hafa látið þá hafa vopn en Hútar búa einnig yfir þekkingu og getu til að framleiða eigin vopn.Stjórnvöld í Jemen hafa fordæmt afskipti og árásir uppreisnarhers Húta af stríðinu í Mið-Austurlöndum. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að Leiðtogaráð forsetans í Jemen fordæmi einnig Íran fyrir ítrekaðar tilraunir til að draga Jemen og önnur lönd í Mið-Austurlöndum í stríð, í gegnum hryðjuverkahópa sína í þessum heimshluta.Fyrir þau sem langar að kynna sér uppreisnarher Húta enn frekar, þá má benda á þetta innslag úr Heimskviðum frá 2024 hér fyrir neðan, þar sem fjallað var um Húta og Jemen.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.