0
Húsnæðisverð fer lækkandi
April 21, 2026
Posted 2 hours ago by
Raunverð íbúða hefur lækkað um 2,63 prósent síðustu tólf mánuði, þegar búið er að leiðrétta íbúðaverð með hliðsjón af verðbólgu. Verðhækkanir íbúða hafa ekki haldið í við verðbólgu síðan á síðasta ári. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun birti í dag vísitölu íbúðaverðs í mars. Íbúðaverð hækkaði um 0,62 prósent milli febrúar og mars og er vísitalan 0,88 prósentum hærri en hún var í september.
Þar á þó eftir að taka tillit til verðbólgu.Fjölbýli á landsbyggðinni hefur hækkað mest í krónum talið, um 3,62 prósent, á síðustu tólf mánuðum. Næstmest er hækkunin á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu, 3,43 prósent. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 2,20 prósent en minnst er hækkunin á sérbýli á landsbyggðinni, 1,58 prósent.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.