Húrra Reykjavík lokar síðustu búðinni
World

Húrra Reykjavík lokar síðustu búðinni

April 8, 2026
RÚV
Scroll

Verslanafyrirtækið Húrra Reykjavík hættir starfsemi undir lok þessa mánaðar. Þá verður verslun fyrirtækisins við Hverfisgötu í Reykjavík lokað. Tilkynnt var um þetta í morgun, mánuði eftir að fyrirtækið greindi frá því að það ætlaði að hætta verslanarekstri í Smáralind og Kringlunni.Þegar tilkynnt var um lokun verslana fyrirtækisins í Smáralind og Kringlunni var sagt að fyrirtækið ætlaði að einbeita sér að rekstri verslunarinnar í miðbæ Reykjavíkur.

Húrra Reykjavík lokar síðustu búðinni

Mánuði síðar er sú staða breytt.Eftir langa og eftirminnilega vegferð höfum við tekið þá erfiðu ákvörðun að loka Húrra og versluninni okkar við Hverfisgötu í lok apríl. Það er erfitt að kveðja eitthvað sem hefur verið svona stór hluti af lífi okkar en allt hefur sitt upphaf og endi,“ segir á Facebook-síðu fyrirtækisins.Fyrsta verslun Húrra Reykjavíkur var opnuð á Hverfisgötu 2014. Reglulega mynduðust langar raðir við verslunina þegar vinsælir skór í takmörkuðu upplagi voru teknir til sölu, svo sem Yeezy-skór sem nutu mikilla vinsælda.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More