Hundar á starfsmannaskrá Fjölbrautaskóla Garðabæjar
0
World

Hundar á starfsmannaskrá Fjölbrautaskóla Garðabæjar

April 19, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Þeir Askur og Laddi eru hundar sem báðir eru á starfsmannaskrá Fjölbrautaskóla Garðabæjar, hundarnir eru báðir með sinn eigin tölvupóst. Hundarnir tveir aðstoða í tímum á sérnámsdeild skólans og hafa þeir reynst vel.Vilhjálmur Þór eða Villi eins og hann er alltaf kallaður og er kerfisstjóri í skólanum á hundana og kemur með þá í vinnuna tvisvar í viku.

Hundar á starfsmannaskrá Fjölbrautaskóla Garðabæjar

Hundarnir, sem heita Askur, sem er sjö ára og Laddi, sem er fjögurra ára eru inni í tímum þar sem sérnámsdeildin er með sína aðstöðu. Mikil ánægja er með hundana og framlag þeirra til skólastarfsins.Okkur finnst þeir bara skila ró og svona friði. Þegar öllum líður vel bæta þeir bara í og ef einhverjum líður kannski ekki nógu vel þá er ofsalega gott að hafa þá,” segir Hrafnhildur Ragnarsdóttir, sérkennari og kennslustjóri á sérnámsbraut skólans.Þetta er frábært framtak hjá ykkur?Já, frábært framtak og við mælum með þessu almennt inn í skólakerfin að hundar séu meira notaðir. Þeir eru á heimasíðunni og þeir eru með netfang en þeir þiggja þó ekki laun og þeir eru aldrei með vesen, aldrei,” segir Hrafnhildur hlæjandi.Og nemendurnir elska hundana en hvað eru þeir helst að hjálpa með?Bara svona alls konar eins og að hjálpa fólki ef það er stressað í skólanum, þá er gott að hafa hundana”, segja vinkonurnar Bryndís Anna Borgþórsdóttir, Ísabella Ósk Sigurðardóttir og Alexandra Albertsdóttir, nemendur á sérnámsbraut skólans.Henrik Einar Hjörvarsson er mjög duglegur að fara út að ganga með hundana í nágrenni skólans.Þeir verða smá brjálaðir þegar þeir sjá annan hund,” segir Henrik.Hundarnir eru að standa sig vel hér í skólanum enda mikil ánægja með þá og ekki síst hjá eigendum þeirra.Þeir eru bara alveg geggjaðir og ég er rosalega ánægður með þá og ég er ferlega glaður með þá, þetta eru alveg frábærir hundar,” segir Vilhjálmur Þór.Mælir þú með hundum í svona skólastarfi?Alveg tvímælalaust, því það bara vekur gleði og ánægju og ró og hvað eigum við að segja, jafnvægi,” bætir Vilhjálmur Þór við.Hundarnir Askur og Laddi eru á starfsmannaskrá Fjölbrautaskólans í Garðabæ og með sinn eigin tölvupóst. Hundarnir eru til aðstoðar í tímum á sérnámsdeildinni og hafa reynst einstaklega vel þar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More