Advertisement
Hryðjuverkamálið tekið fyrir í Landsrétti í maí
World

Hryðjuverkamálið tekið fyrir í Landsrétti í maí

April 2, 2026
RÚV
Scroll

Hryðjuverkamálið verður tekið fyrir aftur í Landsrétti 21. maí. Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í málinu og vísaði því aftur til dómstólsins í byrjun mars. Ákærðu var gefið að sök stórfelld vopnalagabrot og tilraun til hryðjuverka.Málið var fyrst tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar 2024 eftir umfangsmikla rannsókn lögreglu. Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru báðir sýknaðir af tilraun til hryðjuverka og aðild í tilraun til hryðjuverka í Landsrétti og Héraðsdómi Reykjavíkur.

Hryðjuverkamálið tekið fyrir í Landsrétti í maí

Á báðum dómstigum hlutu þeir dóm fyrir vopnalagabrot þó að refsing hefði verið milduð í Landsrétti.Hæstiréttur gerði stórfelldar athugasemdir við dóm Landsréttar í málinu og taldi annmarka hafa verið á túlkun dómstólsins á sönnunarkröfum. Einnig hafi verið annmarkar á því hvernig Landsréttur samdi dóm sinn í málinu.Líklegt þykir að málið endi aftur hjá Hæstarétti eftir efnislega meðferð í Landsrétti í annað sinn, enda eru dómar Hæstaréttar fordæmisgefandi.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More