Hríðarveður annað kvöld

Hríðarveður annað kvöld

Hríðarveður verður í nokkrum landshlutum síðdegis á morgun og annað kvöld, skömmu eftir að hríðarveður sem hófst í dag gengur niður.Veðurstofan hefur sent frá sér gular viðvaranir vegna veðursins.Hríðarveður skellur á Suðausturlandi, Suðurlandi, höfuðborgarsvæðinu, við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi eystra og miðhálendinu milli fimm og átta síðdegis á morgun og annað kvöld.Spáð er suðaustanátt og snjókomu víða á svæðinu, oft hvassviðri eða stormi, og viðbúið að færð spillist. Viðbúið er að vegir lokist vegna veðurs.Veðrið byrjar að ganga niður annað kvöld en stendur fram yfir miðnætti á Vestfjörðum og miðhálendinu.

March 27, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left