Hótar enn meiri árásum ef samningar nást ekki
April 9, 2026
RÚV
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að bandarískar hersveitir yrðu áfram í Mið-Austurlöndum eða þar til raunverulegt samkomulag hefur náðst. Íranar hafa samþykkt opnun Hormússunds en ætla sér að ráða yfir sundinu. Í færslu á samskiptamiðlinum Truth Social sagði hann að ef samningar næðust ekki þá myndu árásir verða enn meiri en áður.Kröfur Írana voru birtar á persnesku í írönskum ríkisfjölmiðlum og þar kom fram að írönsk stjórnvöld geri kröfur um að halda áfram auðgun úrans.
Þessar upplýsingar komu þó ekki fram í kröfum Írans sem birtar voru af Sameinuðu þjóðunum. Trump hefur sagt að tekið verði á auðgun úrans í samningum.Truth Social / Donald Trump
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.