0
Hlutabréf Netflix féllu í verðu þrátt fyrir hagnað og góðar tekjur
April 17, 2026
Posted 3 hours ago by
Verð á hlutabréfum í streymisveitunni Netflix féllu um meira en átta af hundraði eftir að fyrirtækið tilkynnti um að tekjur fyrsta ársfjórðungs 2026 næmu 12,25 milljörðum bandaríkjadala.Sú niðurstaða fer þó ögn fram úr væntingum. Hlutabréfin lækkuðu þótt hagnaður Netflix næmi 5,28 milljörðum dala sem jókst vegna þóknunar fyrir riftun á samningi um kaup veitunnar á Warner Bros.
Discovery.Netflix tilkynnti í febrúar að fyrirtækið hygðist falla frá tilboði sínu eftir að Paramount hækkaði sitt tilboð talsvert.Ekki væri fjárhagslega hagkvæmt að kaupa fyrirtækið á þá 111 milljarða dala sem Paramount bauð. Hlutabréf Netflix hækkuðu nokkuð í verði eftir þetta, þar sem talið var að fyrirtækið gæti varið fénu til framleiðslu vinsæls sjónvarpsefnis.Yfirtaka Paramount gæti gjörbreytt fjölmiðlalandslaginu í Bandaríkjunum verði hún samþykkt af yfirvöldum.Í afkomubréfi sem fyrirtækið sendi fjárfestum kom einnig fram að Reed Hastings, annar stofnanda fyrirtækisins, hyggist stíga til hliðar sem stjórnarformaður í júní. Netflix hefur þróast á þrjátíu árum frá því að vera byltingakennd mynddiskaleiga yfir í að verða voldugasta streymisveita heims með 325 milljónir áskrifenda.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.