Hezbollah hefnir fyrir árásirnar á Líbanon
World

Hezbollah hefnir fyrir árásirnar á Líbanon

April 9, 2026
RÚV
Scroll

Hezbollah-samtökin gerðu gagnárásir á Norður-Ísrael í nótt. Samtökin segja að árásirnar séu vegna þess að Ísraelar virtu ekki vopnahlé og gerðu miklar árásir á Líbanon í gær. Ekki hefur verið greint frá mannfalli í þessum árásum.Yfirmaður sendinefndar Alþjóðaráðs Rauða krossins í Líbanon, Agnes Dhur, fordæmir dráp og eyðileggingu ísraelska hersins og árásir hersins á Líbanon í gær.

Hezbollah hefnir fyrir árásirnar á Líbanon

Sameinuðu þjóðirnar hafa einnig fordæmt árásirnar. Volker Türk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði árásirnar hræðilegar.Alls voru 182 drepnir í árásunum og um 900 eru særð. Miklar árásir voru gerðar á höfuðborgina Beirút í gær og eru þetta mestu árásirnar sem hafa verið gerðar á borgina síðan átökin brutust út milli Hezbollah-samtakanna og Ísrael.Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, segir að Ísraelsher sé tilbúinn til árása á Íran þrátt fyrir vopnahlé Bandaríkjanna og Írans. Þetta kom fram í sjónvarpsávarpi Netanyahu í Ísrael. Hann sagði að stjórnvöld í Ísrael væru enn með markmið sem þau ætluðu sér að ná, annaðhvort með samkomulagi eða með áframhaldandi árásum.Íranar hafa lagt til leiðir fyrir skip til að sigla um Hormússund, þar sem hætta er á að þau rekist á tundurdufl á aðalsiglingarleiðinni. Með yfirlýsingunni fylgdu upplýsingar um bestu siglingarleiðirnar um sundið.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More