0
Herra Hnetusmjör - Tónlist til að sigra við
April 20, 2026
Posted 3 hours ago by
Árni Páll Árnason eða Herra Hnetusmjör hefur verið ein vinsælasta poppstjarna landsins undanfarin ár og allt sem hann hefur komið nálægt gengið upp. Ferill hans byrjaði fyrir rúmum áratug með plötunni Flottur strákur, síðan komu KÓPBOI, Hetjan úr hverfinu, Dögun (ásamt Hugin), Erfingi krúnunnar, Flottur strákur 2, Legend í leiknum og sú nýjasta er Tónlist til að sigra við.Um plötuna segir Árni að hún sé afturhvarf í hið hreina rapp og sé nokkurs konar sigurhringur sem komi í kjölfarið á mikilli velgengni með strákabandinu IceGuys.
Verkið var unnið á þéttum fjögurra mánaða tímabili og fangar mómentið þar sem hann hefur fulla trú á eigin úthaldi til framtíðar.Herra Hnetusmjör mætti til Atla Más og ræddi nýjustu plötu sína Tónlist til að sigra við en hún er plata vikunnar á Rás 2.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.