0
Hernaðarsérfræðingar funda í London vegna Hormússunds
April 22, 2026
Posted 2 hours ago by
Hernaðarsérfræðingar frá yfir þrjátíu löndum koma saman á fundi í London í Bretlandi í dag, miðvikudag, til að ræða og útfæra aðgerðir í fjölþjóðlegu verkefni undir forystu Bretlands og Frakklands til að tryggja siglingar um Hormússund.Forsætisráðherra Bretlands Keir Starmer og forseti Frakklands Emmanuel Macron leiddu alþjóðlegar viðræður um Hormússund í París í Frakklandi á föstudaginn, sem sóttar voru af fulltrúum 40 landa.
John Healey varnarmálaráðherra Bretlands segir að næsta skref eftir þær diplómatísku viðræður sé að vinna að sameiginlegri áætlun til að vernda frelsi til siglinga um Hormússund og styðja við varanlegt vopnahlé.Bretar og Frakkar leggja áherslu á að fyrirhugaðar fjölþjóðlegar aðgerðir í Hormússundi verði eingöngu varnaraðgerðir og hefjist ekki fyrr en búið er að ná samkomulagi um varanlegan frið í þessum heimshluta.Hvorki Bandaríkin né Íran sendu fulltrúa til að taka þátt í alþjóðlegu viðræðunum í París.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.