0
Helsingi í Reykjavík
April 18, 2026
Posted 2 hours ago by
Fremur sjaldséður gestur suðvestanlands sást við Starhaga í Reykjavík á miðvikudag þar sem hann beit gras af áfergju og sötraði vatn úr pollum.Þarna var á ferðinni helsingi, gæs sem sést vanalegast að vori til í þúsundatali á Suðaustur- og Norðvesturlandi, í Húnavatnssýslum og Skagafirði en er fátíð á suðvesturhorninu. Helsinginn vappaði þarna um suðurströnd Reykjavíkur innan um hóp grágæsa að því er Sólrún Harðardóttir greinir frá á vefnum Náttúra Reykjavíkur.Sólrún fagnaði því sérstaklega að hafa myndavél meðferðis til að geta sannað fund sinn.
Hún segir helsingja vera umferðarfarfugla sem haldi sig á Bretlandseyjum að vetrarlagi en haldi flestir til Grænlands á sumrin og komi við hérlendis til að safna orku.Þegar helsinginn heldur til baka á haustin dreifir hann sér meira um sunnanvert hálendið og Skaftafellssýslur, þar sem nokkur hópur þeirra hefur sumardvöl og verpir, helst á söndunum framan við jöklana og innan um jökullónin.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.