0
Háspenna í Síkinu þegar Stjarnan náði í nauman sigur í fyrsta leik
April 21, 2026
Posted 4 hours ago by
Liðin sem mættust í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta á síðasta ári, Stjarnan og Tindastóll, áttust við í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum í kvöld.Heimamenn á Sauðárkróki byrjuðu leikinn mun betur og höfðu náð góðri forystu um miðjan fyrsta leikhluta. Stjarnan tók þá við sér og komst yfir en Stólarnir leiddu þó eftir fyrsta leikhluta með tveimur stigum, 27-25.Stjörnumenn voru sterkari aðilinn í öðrum leikhluta og leiddu í hálfleik 48-44.
Seinni hálfleikur reyndist svo gott sem hnífjafn en Stjörnumenn voru skrefinu á undan allt þar til á lokamínútunni.Þegar tæp mínúta var eftir skoraði Dedrick Basile fimm stig í röð fyrir Stólana og kom þeim einu stigi yfir. Hilmar Smári Henningsson svaraði með tveimur stigum fyrir Stjörnuna sem leiddu þá á nýjan leik.Liðin skiptust svo áfram á forystunni en þegar 11 sekúndur voru eftir kom Basile Tindastóli 95-94 yfir. Stjörnumenn fengu svo vítaskot þegar 4 sekúndur voru eftir og úr báðum skotunum skoraði Seth Leday. Þá var Stjarnan komin stigi yfir, 96-95, og Stólarnir höfðu aðeins 4 sekúndur til að reyna að breyta því. Þriggja stiga skot Basile fór ekki ofan í og Stjörnumenn unnu því sterkan eins stigs sigur.Stjörnumenn voru án landsliðsmannsins Ægis Þórs Steinarssonar í kvöld og verða áfram en Ægir olnbogabrotnaði í oddaleiknum við KR í 8-liða úrslitunum. Fjarvera hans kom ekki að sök í kvöld og ríkjandi Íslandsmeistararnir eru komnir með undirtökin í undanúrslitaeinvíginu.Liðin mætast í leik tvö í Garðabæ á laugardag en á morgun hefst hitt undanúrslitaeinvígið þegar Grindavík og Valur mætast í Grindavík.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.