Lögreglan handtók í gær mann fyrir að ræna strætisvagni við stoppistöðina Vífilsstaði í Garðabæ í gærkvöld. Maðurinn var einnig handtekinn fyrir líkamsárás, hótanir og akstur undir áhrifum, en hann réðst inn í strætisvagninn og keyrði á brott eftir að strætisvagnsstjórinn og farþegar yfirgáfu vagninn.Að sögn Heimis Ríkharðssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, var maðurinn í annarlegu ástandi. Hann var hnepptur í varðhald og yfirheyrður í morgun, en hann hefur áður komið við sögu lögreglu.
March 28, 2026
Source Information
RÚV
Iceland
Lean left