Hampiðjan reisir verksmiðjur á Indlandi
0
World

Hampiðjan reisir verksmiðjur á Indlandi

April 22, 2026
Scroll

Posted 7 hours ago by

Hampiðjan hefur ráðist í uppbyggingu tveggja 28 þúsund fermetra verksmiðjuhúsa í Auric við Aurangabad á Indlandi. Netaverkstæði fyrir fiskeldisnet og veiðarfæri verður í öðru húsinu en verksmiðja fyrir net í hinu. Samhliða verður reist 2.000 fermetra skrifstofuhúsnæði og 1.200 fermetra þjónustu- og mötuneytisaðstaða fyrir starfsfólk sem verður um 750 þegar starfsemin verður komin í fullan gang.Uppbyggingin tengist kaupum Hampiðjunnar á indverska fyrirtækinu Kohinoor.Heildarbyggingarmagn í þessum áfanga nemur rúmlega 59 þúsund fermetrum.

Hampiðjan reisir verksmiðjur á Indlandi

Síðastliðið haust gekk félagið frá kaupum á 120 þúsund fermetra lóð á iðnaðarsvæðinu í Auruc, með heimild til að byggja allt að 76 þúsund fermetra.Afar hagstæður launakostnaður í IndlandiÍ tilkynningu félagsins er haft eftir Hirti Erlendssyni forstjóra að uppbyggingin styrki framleiðslugetu fyrirtækisins og auki hagkvæmni og sveigjanleika í rekstri.Framleiðslu- og launakostnaður er afar hagstæður á Indlandi samanborið við Litháen þar sem við starfrækjum nú tvö stór netaverkstæði og tæknilega fullkomna kaðlaverksmiðju sem framleiðir hátæknitóg og lyftistroffur úr ofurefnum. Þetta ár fer að mestu í uppbygginguna og að koma framleiðslunni af stað og við munum því byrja að njóta meiri hagkvæmi næsta vetur og í enn meira mæli næsta ár.“Gert er ráð fyrir að fyrra verksmiðjuhúsið verði tilbúið í lok júlí og það seinna mánuði síðar, að því er segir í tilkynningunni. Heildarkostnaður við lóðina og byggingarframkvæmdir er talinn munu nema 18,6 milljónum evra, eða sem nemur 2,7 milljörðum króna. Byggingarkostnaður á fermetra nemur um 34 þúsund krónum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More