0
Grunaður forsprakki hryðjuverkaárásar í París fyrir 44 árum framseldur
April 17, 2026
Posted 3 hours ago by
Palestínsk yfirvöld hafa framselt Hicham Harb til Frakklands. Hann er sjötugur og talinn höfuðpaur handsprengju- og skotárásar sem tveir hópar manna gerðu á veitingahúsið Jo Goldenberg í gyðingahverfinu Marais, þar sem sex voru drepnir og tuttugu særðust.Þá hafði ekki verið gerð mannskæðari atlaga að gyðingum í Frakklandi frá lokum síðari heimsstyrjaldar.
Álitið var að árásarmennirnir tilheyrðu Fatah-byltingarhreyfingunni undir stjórn Abus Nidal. Hann var um tíma einn eftirlýstasti glæpamaður heims og lést í skotárás á heimili sínu í Bagdad árið 2002.Hryðjuverkadeild ríkissaksóknara Frakklands greindi Reuters frá þessu í gær. Palestínsk yfirvöld handtóku Harb í september, skömmu áður en Frakkar lýstu yfir viðurkenningu á ríki Palestínumanna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.Þá sagði utanríkisráðherrann Jean-Noël Barrot viðurkenninguna meginástæðu þess að Harb var handtekinn. Undirbúningur að framsali hans hófst umsvifalaust. Réttarhöld bíða Harbs og hryðjuverkadeild frönsku lögreglunnar leitar fleiri manna sem grunaðir eru um aðild að árásinni.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.