Grindavík tók sigur á Hlíðarenda
March 31, 2026
RÚV
Fyrstu umferð úrslitakeppni Bónusdeildar kvenna lauk í dag með tveimur leikjum. Grindavík mætti Val á Hlíðarenda og byrjaði leikinn betur og leiddi að loknum fyrsta fjórðungi, 7-15. Valskonur minnkuðu muninn í öðrum leikhluta og munurinn stóð í þremur stigum í hálfleik en Grindavík leiddi enn, 20-23. Grindvíkingar voru skrefi framar í þriðja leikhluta en spennan var þó áfram mikil því aðeins eitt stig skildi liðin að fyrir lokafjórðunginn, 35-36.
Jafnt var í stöðunni 55-55 þegar ein mínúta lifði leiks en þaðan skoruðu Grindvíkingar næstu fjögur stig og tryggðu þar með sigurinn, 55-59. Grindavík leiðir einvígið því 1-0.Þá mættust KR og Keflavík í Vesturbænum þar sem heimakonur höfðu yfirhöndina. KR leiddi með átta stigum í hálfleik, 43-35. Áfram héldu KR-ingar og liðið vann loks 16 stiga sigur, 85-69. KR-ingar hafa forystu í einvíginu, 1-0.Liðin mætast aftur á laugardag. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.