0
Grindavík tók forskotið gegn Njarðvík
April 19, 2026
Posted 2 hours ago by
Grindavík leiðir 1-0 í undanúrslitaeinvíginu gegn Njarðvík á Íslandsmóti kvenna í körfubolta. Grindavík fór ögn betur af stað og leiddi með fjórum stigum eftir fyrsta leikhluta, 18-22.Þá stigu gestirnir gulu enn frekar á bensíngjöfina og komust mest í fjórtán stiga forskot í öðrum leikhluta. Njarðvíkingar náðu aðeins að kroppa sig til baka og munurinn var tíu stig í hálfleik, 34-44.Njarðvíkingar komu af miklum krafti út eftir hálfleik og forskot gestanna var orðið aðeins þrjú stig, 58-61, eftir þriðja leikhluta.Njarðvík náði svo forskotinu og fjórði leikhluti var nokkuð jafn.
Njarðvíkurvélin hökti hins vegar undir lokin og sigldu Grindvíkingar sigrinum heim. Að lokum varð munurinn sex stig, 81-87.Isabella allt í ölluIsabella Ósk Sigurðardóttir leiddi leik Grindavíkur og endaði hún leikinn með 22 stig og átta fráköst. Farhiya Abdi var hins vegar stigahæst með 22 stig.Sóknarleikur Njarðvíkinga var keyrður áfram af Brittany Dinkins og Danielle Rodriguez. Dinkins var með 31 stig og Danielle 24.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.