Grindavík og Keflavík bitu frá sér í kvöld
April 4, 2026
RÚV
Keflavík jafnaði metin gegn KR í einvíginu.RÚV / Mummi LúGrindavík leiðir 2-0 í einvíginu gegn Val í 8-liða úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta. Grindavík leiddi með níu stigum í hálfleik, 43-32. Valskonur bitu frá sér í seinni hálfleik og var mjótt á mununum. Að lokum vann Grindavík sex stiga sigur, 79-73.Reshwana Stone var stigahæst hjá Val með 29 stig og Abby Beeman leiddi Grindvíkinga með 27 stig.Keflvíkingar jöfnuðu einvígið gegn KR með 88-77 sigri.
Keflavík leiddi 46-40 í hálfleik og sigldu sigrinum að lokum örugglega heim. Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst hjá Keflavík með 22 stig og sex fráköst. Molly Kaiser fór fyrir KR-ingum með 22 stig, sex fráköst og sex stoðsendingar.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.