Gosdrykkjaframleiðandi hættir við að fjármagna tónlistarhátíð í Lundúnum — rakið til þátttöku Kanye West
April 6, 2026
RÚV
Gosdrykkjaframleiðandinn Pepsi hefur hætt við að vera aðalbakhjarl bresku tónlistarhátíðarinnar Wireless í Lundúnum eftir að tilkynnt var um þátttöku þess umdeilda tónlistarmanns Kanye West, sem nú kallar sig Ye.Talsmaður Pepsi vildi ekki tjá sig um ástæður þess að hætt var við þegar AFP-fréttaveitan innti eftir því, en staðfesti að ekkert yrði af stuðningi.
Ýmis ummæli og yfirlýsingar West eða Ye nýverið hafa valdið mikilli úlfúð og uppnámi, hann hefur meðal annars lýst yfir gyðingaandúð og hrifningu á nasisma.Breski forsætisráðherrann Keir Starmer gagnrýndi tónleikahaldara í samtali við götublaðið Sun fyrir að falast eftir kröftum West, þótt hann hafi beðist afsökunar og kennt geðhvarfasýki og ótilgreindum heilaskemmdum um orðfæri sitt.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.