Glódís eftir leikjametið: „Ég er ekkert að hætta á næstunni“
0
World

Glódís eftir leikjametið: „Ég er ekkert að hætta á næstunni“

April 18, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Glódís Perla Viggósdóttir sló leikjamet íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í kvöld er liðið mætti Englandi. Hún hefur nú leikið 146 en Sara Björk Gunnarsdóttir átti metið.Glódís ræddi um landsliðsferilinn og sín uppáhalds augnablik eftir 0-1 tap gegn Englandi í kvöld.Þetta er eiginlega svolítið óraunverulegt. Ég var svona að reyna að ýta þessu til hliðar og vera ekki að fókusa mikið á þetta.

Glódís eftir leikjametið: „Ég er ekkert að hætta á næstunni“

En svo fékk ég voða sætt myndband í undirbúning fyrir leikinn. Þá táraðist ég aðeins.Svo eftir leik eru tilfinningar að hellast yfir mann. Ég er gríðarlega stolt.“Heiðurinn er minn, að hafa fengið að spila með þér. Við skulum hafa það á hreinu,“ sagði Glódís við Margréti Láru Viðarsdóttur.Ég er ekkert að ákveða að hætta á næstunni. Ég á slatta inni. Mér finnst ég enn þá vera að bæta mig. Mér finnst ég enn þá vera að læra. Mér finnst það ótrúlega skemmtilegt. Svo lengi sem ég er að gera það þá mun ég halda áfram að spila, svo lengi sem líkaminn verður í lagi.“Ef leikirnir verða 150 eða 200. Ég veit það ekki.“Viðtalið má sjá í heild sinni hér að neðan. Glódís ræddi við Eddu Sif Pálsdóttur, Margréti Láru og Hörð Magnússon.Glódís Perla Viggósdóttir sló leikjamet íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í kvöld. Hún segist ekkert á þeim buxunum að hætta á næstunni. Þá rifjaði hún upp sín uppáhalds augnablik í íslensku treyjunni í gegnum árin. Þarf Glódís að færa sig um set? Þá spurði Margrét hvort Glódís þyrfti mögulega að huga að því að fara frá Þýskalandi vegna álags en leikirnir með Bayern eru margir.Mér finnst bara svo gaman að spila fótbolta. Mér finnst svo gaman að spila með landsliðinu. Það eru svona leikir eins og seinni hálfleikurinn í dag sem gefa manni svo ógeðslega mikið.“Þegar maður er þreyttur og smá illt í líkamanum þá kemur maður fyrir þessi augnablik. Það er þetta sem maður elskar.“Uppáhalds minning?Glódís rifjaði upp sín eftirlætis augnablik með landsliðinu.Að vera herbergisfélaginn hennar Margrétar,“ sagði Margrét Lára. Ég var örugglega bara 18 ára,“ svaraði Glódís.Mér fannst ótrúlega gaman þegar ég fékk að koma inn á fyrir Kötu Jóns á EM í Svíþjóð árið 2013. Mér fannst smá eins og hún væri að rétta mér keflið. Það er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma.“Svo eru það sigrarnir úti á móti Þýskalandi og hérna heima. Það er svona extra. Maður mun aldrei gleyma því.“Ætlar hún að spila 200 leiki?Glódís var einnig spurð hvort hún stefni á 200 leiki.Eigum við ekki bara að byrja á 150? Það kemur í ljós. Ef mér finnst þetta ennþá gaman svona lengi og ég er ennþá bara góð. Ef ég verð valin í landsliðið svona lengi þá verður það bara frábært,“ sagði Glódís.Munurinn á fyrri og seinni í dag?Glódís ræddi einnig muninn á fyrri og seinni hálfleiknum en Ísland sótti án afláts.Ég held að það sem gaf okkur mest sé að við fáum svo ótrúlega mikið sjálfstraust eftir að við förum að ná að skapa föst leikatriði. Það eina sem við töluðum um var að hætta þessum krúsídúllum og setja hann upp í horn. Reyna að fá innköst og horn, það gefur okkur sjálfstraust.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More