0
Gleðilegt sumar frá Undiröldunni
April 23, 2026
Posted 2 hours ago by
Bubbi Morthens - Við föllumVið föllum er nýjasta lag Bubba Morthens og er tekið af væntanlegri plötu Ásbjörns sem kemur út í maí. Lagið segir hann að sé risastórt og kröftugt, þar sem gestainnkoma frá Fjallabræðum gerir mikið. Nýja platan kemur út 8. maí og auk þess styttist í tónleika Bubba í Laugardalshöll 6. júní.Kristný Eir - Ein leið að elskaTónlistarkonan Kristný Eir er að feta sín fyrstu skref innan tónlistarbransans en hefur þó samið lög síðan í barnæsku.
Hún spilar á gítar og syngur angurværa og ljúfa tóna með áherslu á ljóðræna textasmíð en lagið útsetti Magnús Jóhann Ragnarsson.Stafrænn Hákon - Tú-KókóSíðrokksveitin Stafrænn Hákon hefur verið starfrækt síðan á síðustu öld með Ólaf Örn Jósepsson í stafni. Sveitin gefur ansi reglulega út og þeirra nýjasta plata Suð/Kókos kom út í byrjun apríl.Undiraldan þriðjudaginn 21. aprílÞað er einungis einn Undirölduþáttur þessa vikuna vegna komandi sveitastjórnarkosninga sem fara fram um miðjan maí. Það er nú samt kósí stemmning hjá tónlistarfólkinu sem komst að en það voru meðal annar Bubbi Morthens og Stafrænn Hákon.Kig and Husk - Monkey RepublicLagið Monkey Republic varð til eftir heimsókn Kig and Husk á yfirlitssýningu Errós. Þegar sveitin mætti næst í stúdíóið hafði hún ekki enn gleymt verkinu Monkey Republic og lagið stökk þá nánast fullskapað fram og er smáskífa af samnefndri breiðskífu KIG HUSK sem kemur út á tvöföldum vinyl í júní 2026.Pitenz - See You TomorrowAkureyringurinn Áki Sebastian Frostason kallar sig Pitenz og sérhæfir sig í draumkenndu svefnherbergispoppi. Hans nýjasta lag er See You Tomorrow sem hann segir að sé tilraun hans til að skapa hljóðheim sem hann getur týnt sér í og sé hinn fullkomni felustaður.Hafaldan, Lúkas Þorlákur Jones - GeimfariHafaldan er íslenskur tónlistarmaður sem segist sífellt skora á sig að semja tónlist sem grípur hlustandann við fyrstu hlustun. Nýjasta lagið hans Geimfari gefur hann út ásamt vini sínum Láka. Lagið skilgreinir hann sem melankólískt indie-popp sem spyr þá einföldu spurningu um hvenær sé rétt að sleppa takinu á manneskju.Undiraldan lagalisti
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.