Glæpagengi myrti 70 manns í mikilli árás
March 31, 2026
RÚV
Árásin hófst á laugardaginn og stóð fram á sunnudaginn í bænum Petite Riviere de l'Artibonite á mið-Haítí. Glæpagengið Gran Grif gekk berserksgang, myrti fólk og brenndi hús. Endanlegar tölur yfir fjölda látinna hafa ekki verið staðfestar. Lögregluyfirvöld segja að 16 hafi verið drepnir og að minnst tíu séu særðir, en mannréttindasamtökin The Collective Defending Human Rights group, segja að 70 manns hafi verið drepnir drepnir í árásinni og 30 séu særðir, samkvæmt frétt fréttamiðilsins The Guardian.Sameinuðu þjóðirnar fordæma árásirnar.
Þessi árás undirstrikar alvarleika öryggisástandsins sem haítíska þjóðin býr við,“ segir Stephane Dujarric, talsmaður aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres.Gengjaofbeldi er útbreitt á Haítí og morð, nauðganir og mannrán eru tíð á eyjunni. The Guardian segir að um 20.000 manns hafi verið drepin á Haítí síðan 2021 og að milljónir manna hafi þurft að yfirgefa heimili sín vegna gengjaofbeldis á eyjunni.Þá greindi Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna frá því í síðustu viku að gengjaofbeldi og öryggisaðgerðir sem beindust gegn því hafi leitt til um 5500 dauðsfalla á tímabilinu mars 2025 þar til um miðjan janúar á þessu ári.Öryggissveitir á Haítí njóta stuðnings aðgerðasveitar á vegum Sameinuðu þjóðanna og bandarískrar leiguhersveitar í baráttunni gegn glæpagenginu á eyjunni. Enn sem komið er hefur þeim þó ekki tekist að handataka helsta leiðtoga gengisins.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.