Gera teikningar af Titanic aðgengilegar almenningi
World

Gera teikningar af Titanic aðgengilegar almenningi

April 5, 2026
RÚV
Scroll

Í þessum mánuði verða 114 ár frá því farþegaskipið Titanic lagði upp í jómfrúarferð sína og sökk í Norður-Atlantshafið. Teikningar og uppdrættir af skipinu verða brátt gerð aðgengileg almenningi í fyrsta sinn.Þegar Titanic var byggt var það stærsta og um margt fullkomnasta skip sem byggt hafði verið og var búið áður óþekktum þægindum og tækni. Rafstöð skipsins gat til að mynda framleitt meira rafmagn en notað var í mörgum borgum á þessum tíma.Teikningar og uppdrættir af skipinu eru meðal hundraða þúsunda skipsteikninga og skjala frá einni stærstu skipasmíðastöð þess tíma í Belfast.

Gera teikningar af Titanic aðgengilegar almenningi

Þjóðminjasafn Norður-Írlands í samstarfi við Ulster Folk safnið í Belfast gerir skjölin nú aðgengileg almenningi. Hægt verður að skoða þau bæði á vef og með því að panta tíma en þau hafa aðeins verið aðgengileg fræðimönnum fram að þessu.Siobhan McLaughlin, skjalavörður, segir að skjölin afhjúpi falda sögu Belfast.Meira en 1.500 manns létust þegar Titanic sökk í jómfrúarferð sinni árið 1912. Skipið var kallað ósökkvanlegt og þegar það sökk voru ekki björgunarbátar í því fyrir nema lítinn hluta farþega. Flakið fannst á hafsbotni árið 1985. Það liggur á um 4 kílómetra dýpi, tæpa 600 kílómetra undan strönd Nýfundnalands í Kanada.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More