Gekk vel að ráða niðurlögum sinueldsins
0
World

Gekk vel að ráða niðurlögum sinueldsins

April 18, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Vel gekk að ráða niðurlögum allmikils sinuelds undir Háfelli í dag. Um 19:30 var búið að slökkva eldinn og klukkutíma síðar hafði slökkvilið lokið við að vökva jarðveginn og tryggja vettvanginn.Svæði sinueldsins verður þó vaktað áfram í kvöld ef ske kynni að eldglæður leynist þar enn.Bjarki Már Gunnarsson, deildarstjóri útkalls- og æfingasviðs hjá Slökkviliði Mýrdalshrepps, telur sinueldinn hafa slagað upp í ferkílómeter.

Gekk vel að ráða niðurlögum sinueldsins

Eldur barst þó hvorki í hús, bíla né önnur tæki.Þetta gekk vel framan af og svo snérist vindáttin að okkur. Það var sunnanátt og svo snýr áttin aðeins norðar og þá blés þetta aðeins upp á okkur,“ segir Bjarki í viðtali við fréttastofu. Hann segir það hafa skipt sköpum að hafa notið aðstoðar frá Björgunarsveitinni Víkverjar og Slökkviliði Skaftárhrepps.Þetta hefði verið erfitt án þeirra.“Tveir dælubílar voru sendir á vettvang auk eins tækjabíls og þriggja tankbíla. Rúmur helmingur af vatninu fór í að slökkva eldinn og restin var nýtt til að kæla jarðveginn.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More