0
Gagnaleki hjá bókunarfyrirtækinu Booking.com
April 13, 2026
RÚV
Gögn um notendur vefsíðunnar Booking.com rötuðu í hendur óviðkomandi aðila“ eftir gagnaleka hjá bókunarfyrirtækinu. Í frétt Guardian segir að ekki hafi fengist upplýsingar hversu margir viðskiptavinir bókunarþjónustunnar hafi orðið fyrir áhrifum af gagnalekanum. Talsmaður fyrirtækisins segir að tölvuþrjótar hafi ekki komist yfir neinar fjármálaupplýsingar.Í tilkynningu félagsins segir að í ljós hafi komið að óviðkomandi þriðju aðilar hafi komist í upplýsingar um bókanir sem gerðar voru í gegnum vefsíðuna.
Strax í kjölfarið hafi vinna hafist við að girða fyrir vandamálið. Þeir viðskiptavinir sem urðu útsettir fyrir gagnalekanum hafi verið látnir vita.Í tölvupósti sem sendur var til viðskiptavina Booking.com segir að tölvuþrjótarnir hafi komist í upplýsingar sem gætu innihaldið nöfn, tölvupóstföng, heimilisföng og símanúmer sem tengd voru fyrri bókunum, auk upplýsinga sem viðskiptavinir hafi deilt með gististöðum.Tilraunir til fjársvika algengar á bókunarvefnumFyrirtækið hefur á undanförnum misserum glímt við mikinn fjölda svindlara sem reyna að svíkja út fé í gegnum bókunarþjónustuna. Meðal algengustu leiða sem svindlarar beita er að óska eftir greiðslukortaupplýsingum sem sagðar eru vera til að staðfesta bókun. Háar fjárhæðir eru svo teknar út af kortum grunlausra ferðalanga í kjölfarið.Árið 2018 greiddi fyrirtækið hollenskum persónuverndaryfirvöldum sekt upp á 475 þúsund evrur, sem samsvarar nærri 70 milljónum króna á gengi dagsins í dag, eftir að netglæpamenn höfðu aðgangsupplýsingar inn á Booking.com af starfsfólki hótels í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þeir komust í kjölfarið í viðkvæmar upplýsingar rúmlega 4.000 viðskiptavina bókunarfyrirtækisins.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.