Gæsluvarðhald líklega framlengt í Dettifoss-máli
0
World

Gæsluvarðhald líklega framlengt í Dettifoss-máli

April 20, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Þrír eru í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa reynt að smygla rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa með flutningaskipinu Dettifossi.Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út á morgun en Ævar segir að gera megi ráð fyrir því að farið verði fram á framlengingu.Hann segist ekki geta tjáð sig um hvort hinir grunuðu hafi tengsl við skipulagða brotastarfsemi.

Gæsluvarðhald líklega framlengt í Dettifoss-máli

Skipið var stöðvað við heimkomu frá Evrópu og er því talið líklegt að efnin hafi komið þaðan.Alls voru sex handteknir vegna málsins en þremur sleppt stuttu síðar. Tveir af þeim sem eru í haldi eru starfsmenn Eimskipa. Lögregla lagði hald á efnin síðasta mánudag. Ævar segir rannsókn málsins miða vel áfram en að hann geti ekki tjáð sig frekar að svo stöddu.Um er að ræða verulegt magn fíkniefna sem Ævar Pálmi gerir ráð fyrir að muni hafa áhrif á ólöglegan markað.Við teljum að svo sé að það hafi alltaf einhver áhrif, að minnsta kosti til skemmri tíma,“ segir hann. Minna framboð muni mögulega hafa áhrif á verðlagningu. Þetta hefur allavega þau áhrif að þetta fer ekki á götuna,“ segir hann.Ekki liggur fyrir hver styrkleiki efnisins er og því ekki hægt að segja til um hversu mikið magn hefði verið hægt að framleiða til sölu úr amfetamínbasanum. Í Saltdreifaramálinu svokallaða var mönnum sem fluttu inn 53 lítra af amfetamínbasa gefið að sök að hafa framleitt um 117 kíló af amfetamíni úr basanum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More