Fyrstu 15 mínúturnar skipta öllu máli
April 10, 2026
RÚV
Gríðarlega miklu máli getur skipt að bregðast hratt við ef einhver lendir í snjóflóði. Fyrstu 15 mínúturnar eru mikilvægastar og að réttur búnaður geti bjargað mannslífum.Fræðin segja allavega að fyrstu 15 mínúturnar hafi menn svona 90 lífslíkur en síðan er þetta bara nánast lóðbeint strik niður eftir þessar 15 mínútur,“ sagði Tómas Atli Einarsson, björgunarsveitarmaður á Ólafsfirði.Mikið hefur snjóað undanfarnar vikur, sérstaklega á norðan- og austanverðu landinu.
Þá eru aðstæður til þess að fara á vélsleða eða fjallaskíði góðar. Þetta er skemmtilegt sport að sögn Tómasar, en ekki hættulaust.Hin heilaga þrenning fólks sem ætlar á fjöll eru: snjóflóðaýlir, skófla og stöng. Bæði til þess að tryggja eigið öryggi og til þess að vera klár að aðstoða aðra. Aðspurður telur Tómas að flestir séu búnir þessu:Ég ætla að leyfa mér að halda að það sé nánast krafa, að nánast allir séu búnir þessum búnaði. Annað er glapræði.“Rétt fyrir mánaðarmótin féll stórt flóð í Skeggjabrekkudal við Ólafsfjörð og mátti minnstu muna að hópur vélsleðamanna hafi lent í flóðinu. Líklegt er að flóðið hafi ekki fallið af náttúrulegum sökum:Ég held að það megi bara leiða mjög sterkum líkum að því að þetta hafi verið út af brekkuspóli hjá þessum hópi. Það er ekkert auðveld aðkoma að þessu svæði þar sem flóðið fellur. Það er mjög bratt, brött hlíð sem þarf að fara til að komast inn á þetta svæði. Það sem gerðist er að menn allavegana með sínum ferðum náð að koma af stað snjóflóði,“ sagði Tómas og hvatt alla til þess að fara varlega til fjalla.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.