Fyrsta sakfellingin vegna netverslunar snerist um hvítvínsbelju
World

Fyrsta sakfellingin vegna netverslunar snerist um hvítvínsbelju

April 8, 2026
RÚV
Scroll

Forsvarsmaður netáfengissöluverslunarinnar Smáríkisins, Vilhjálmur Forberg Ólafsson, hefur verið dæmdur fyrir sölu á hvítvínsbelju í Héraðsdómi Reykjaness.Vísir greindi fyrst frá en Vilhjálmur hlýtur 100 þúsund króna sekt fyrir brotið. Greiði hann ekki innan fjögurra vikna þarf hann að sæta fangelsisvist í átta daga. Þá þarf Vilhjálmur einnig að greiða málsvarnarlaun verjanda síns sem nema 4,9 milljónum króna.Í svari við fyrirspurn fréttastofu segist Ólafur Eiríksson, verjandi Vilhjálms, ekki ætla að veita viðtal um málið að svo stöddu en að skjólstæðingur hans hyggist áfrýja málinu til Landsréttar.Erlenda vefsíðan aðeins notuð til milligönguDómurinn var kveðinn upp í dag en hefur ekki verið birtur á vef dómstólsins enn sem komið er og liggja forsendur hans því ekki fyrir enn sem komið er.Í ákæru á hendur Vilhjálmi var honum gefið að sök að hafa selt þriggja lítra belju af Chardonay í gegnum vefsíðu Smáríkisins, sem er rekin af félaginu, Iceland Trading Company, sem er hýst erlendis en Vilhjálmur er daglegur stjórnandi hjá.

Fyrsta sakfellingin vegna netverslunar snerist um hvítvínsbelju

Beljan var svo afhent í gegnum sendingarþjónustu Wolt.Áfengið hafi aftur á móti verið keypt af íslenska félaginu Kjútís ehf. af íslenskum áfengissala. Vilhjálmur er framkvæmdastjóri hjá Kjútís ehf. en faðir hans á fyrirtækið.Þar með var talið að erlenda félagið hefði einungis verið notað til milligöngu um sölu áfengis á Íslandi og Vilhjálmur Forberg þar með brotið gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til smásölu áfengis á Íslandi.Óljóst hvaða áhrif dómurinn hafiEins og fyrr segir er dómurinn ekki aðgengilegur og því enn óljóst hverjar forsendur hans eru og hvaða þýðingu hann hafi fyrir netsölu áfengis. Forsvarsmenn netverslunarinnar Santé, sem einnig selur áfengi, hafa gefið frá sér yfirlýsingu varðandi dóminn og segist ósammála niðurstöðu hans. Dómurinn breyti þó litlu um heildarmyndina að þeirra mati.Við hjá Santé höfum barist fyrir sjálfsákvörðunarrétti neytenda í áratug og þetta er aðeins einn liður í þeirri baráttu. Staðan er skýr. Fleiri en 100.000 Íslendingar hafa þegar greitt atkvæði með veskinu og valið frjálsa verslun. ESA hefur gert athugasemdir í sjö liðum um að íslenska einokunin standist ekki EES-rétt. Og það sem skiptir mestu, frumvarp um að leyfa netverslun með áfengi liggur þegar fyrir á Alþingi, það fer í atkvæðagreiðslu og meirihluti þingmanna er hlynntur samþykkt þess. Við ætlum ekki að láta einn dóm stoppa okkur. Santé heldur áfram að berjast fyrir sjálfsákvörðunarrétti neytenda og atvinnufrelsi á Íslandi.Forvarnarsamtökin fagna aftur á móti dómnum og segjast í sameiginlegri yfirlýsingu treysta því að stjórnvöld muni standa með gildandi lýðheilsustefnu samþykktri á Alþingi, tilmælum og áfengisforvarnaáætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, gagnreyndum lýðheilsurannsóknum og ályktunum heilbrigðisstétta og forvarnar- og foreldrasamtaka.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More