0
Fyrirskipar eftirlit með ferðamannastöðum eftir skotárás
April 21, 2026
Posted 2 hours ago by
Kanadískur ferðamaður var drepinn og 13 aðrir særðust þegar maður hóf skothríð við Teotihuacan-pýramídana í Mexíkó í gærkvöld. Pýramídarnir eru í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Mexíkóborg. Skotárásin var þaulskipulögð og Claudia Sheinbaum forseti Mexíkó segir nauðsynlegt að herða skotvopnaeftirlit á ferðamannastöðum.Skotárásin átti sér stað við pýramída tunglsins, 45 metra hátt mannvirki sem hægt er að fara upp á í bröttum stiga.
Árásarmaðurinn var 27 ára og frá Mexíkóborg. Hann svipti sig lífi þegar hermenn nálguðust hann. Meðal þeirra særðu voru kanadísk kona, mæðgin frá Kólumbíu, tveir Bandaríkjamenn og maður frá Brasilíu.Þaulskipulögð árásRíkissaksóknari Mexíkó upplýsti í dag að maðurinn hefði komið reglulega á staðinn og gist á hótelum í nágrenninu. Þar hafi hann skipulagt verknaðinn. Hátt í tvær milljónir ferðamanna heimsóttu staðinn á síðasta ári. Pýradídarnir eru taldir um 2.000 ára gamlir.Sheinbaum hvatti til þess að eftirlit með skotvopnum yrði aukið á ferðamannastöðum. Það þarf að bæta öryggismál til þess að tryggja að einhver geti ekki komið inn á ferðamannastað með skotvopn,“ sagði hún.Heimsmeistarakeppnin í fótbolta fer að hluta fram í Mexíkó, þar á meðal opnunarleikurinn sem fer fram 11. júní.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.