Fylgdust með ferðum rússneskra kafbáta í rúmlega mánuð
April 9, 2026
RÚV
Bretar og bandamenn þeirra fylgdust með ferðum rússneskra kafbáta norður af Bretlandi í rúmlega mánuð. Varnarmálaráðherra Bretlands segir njósnabátana hafa verið í grennd við mikilvæga innviði eins og sæstrengi.Kafbátarnir farnirJohn Healy, varnarmálaráðherra Bretlands, upplýsti um þetta á blaðamannafundi í Downingstræti í morgun. Hann segir varðskip hersins og eftirlitsflugvélar hafa fylgst með ferðum kafbátanna allan sólarhringinn.Aðgerðin hafi varað í rúmlega mánuð og meðal annars verið í samstarfi við norska herinn.
Kafbátarnir hafi yfirgefið breskt hafsvæði og haldið norður á bóginn.Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hér á landi er hún ekki með getu til þess að greina kafbáta neðansjávar.Engar skemmdir unnar á sæstrengjumHealy segir aðgerðir Rússa hafa staðið yfir síðustu vikur, meðan augu heimsins einbeittu sér að mestu leyti að Mið-Austurlöndum og stríðinu þar.Kafbátarnir hafi verið þrír í efnahagslögsögu Bretlands, Akula árásarkafbátur og tveir Gugi njósnakafbátar.Healy segir árásarkafbátinn líklega hafa verið tálbeitu, til að beina athyglinni frá njósnakafbátunum meðan þeir skoðuðu innviði sem séu Bretlandi og bandamönnum þeirra mikilvægir.Hann segir engar vísbendingar um að skemmdir hafi verið unnar á sæstrengjum eða leiðslum í eigu Breta.Healy ávarpaði Vladimír Pútín Rússlandsforseta beint á blaðamannafundinum.Ég sendi frá mér þessa yfirlýsingu til að varpa ljósi á starfsemi Rússa og við Pútín forseta segi ég: Við sjáum starfsemi ykkar yfir sæstrengjunum og leiðslunum og þið ættuð að vita að allar tilraunir til þess að vinna skemmdarverk á þeim verða ekki liðnar og eiga eftir að hafa alvarlegar afleiðingar.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.