Fundu mann sem var leitað eftir að snjóflóð féll í Ólafsfirði
March 28, 2026
RÚV
Snjóflóð féll í Ólafsfirði fyrir skemmstu. Einn lenti í flóðinu og var leitað í fyrstu en hann er nú kominn í leitirnar heill á húfi. Þetta staðfestir Andri Freyr Sveinsson varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.Flóðið féll utan byggða í Skeggjabrekkudal nálægt golfsvæðinu. Ofanflóðasérfræðingur Veðurstofunnar telur ekki hættu á frekari snjóflóðum.
Hún segir flóðið ekki hafa fallið vegna veðurs heldur hafi vélsleði sett það af stað. Allar björgunarsveitir á Eyjafjarðasvæðinu voru boðaðar út í hæsta forgangi en allt viðbragð hefur verið afturkallað. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út að beiðni lögreglunnar en hefur líka verið afturkölluð.Það var enginn í flóðinu í sjálfu sér,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.Mér sýnist einn hafa borist með því en hann komst af sjálfsdáðum út úr því. Þetta voru sleðamenn og það er margbúið að telja hópinn.“Fréttin hefur verið uppfærð.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.