Fulltrúar fjögurra ríkja ræddu friðarumleitanir í Islamabad
March 29, 2026
RÚV
Utanríkisráðherrar fjögurra ríkja komu saman í Pakistan í dag til að ræða mögulegar friðarumleitanir í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Fundur ríkjanna fjögurra fór fram í Islamabad, höfuðborg Pakistans. Þar hittust utanríkisráðherrar Pakistans, Sádí-Arabíu, Egyptalands og Tyrklands og ræddu leiðir til að minnka spennu í stríðinu í Mið-Austurlöndum.Stjórnvöld í Pakistan reyna að miðla málum milli Bandaríkjanna og Írans.
Pakistanskur sérfræðingur segir árangurinn velta á friðarvilja ríkjanna sem eigi í stríði – sem í þessu tilfelli sé enginn.Ekki aðeins þeir sem eiga pólitískra hagsmuna að gæta, heldur einnig hermálayfirvöld þessara landa, hafa ekki vilja til að koma á friði,“ segir Khalida Goups, sérfræðingur í alþjóðasamskiptum.Stjórnvöld í Íran hóta Bandaríkjamönnum öllu illu ætli þeir að hefja landhernað. Ríkin tvö áttu ekki fulltrúa á fundum í Islamabad í dag þar sem leiðir til að minnka spennu í stríðinu í Mið-Austurlöndum voru ræddar.Bandarískum hermönnum verði mætt með sprengjuregniFyrr í dag sakaði forseti íranska þingsins bandarísk stjórnvöld um fyrirætlanir um landhernað. Hann sagði Írana bíða komu bandarískra hermanna á íranska grundu og hótaði að þeim yrði mætt með sprengjuregni.Bardagamenn íslams hafa lengi beðið slíkra aðgerða til þess að sýna að árásir og hernám skila engu öðru en niðurlægjandi hertöku, sundurlimun og burthvarfi árásarmanna. Og bandarískir liðsforingjar og óbreyttir hermenn verða hákarlafæða í Persaflóa.“Ummæli þingforsetans má rekja til fréttar bandaríska fjölmiðilsins Washington Post í gær þar sem greint var frá því að varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna byggi sig undir nokkurra vikna landhernað gegn Íran og að um fjögur þúsund bandarískir hermenn væru væntanlegir til Persaflóa. Enn er þó óljóst hvort Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi samþykkt slíkt.Hútar, bandamenn Írana í Jemen, hafa gert árásir á Ísrael undanfarna tvo daga. Íranar hafa lokað Hormússundi fyrir skipum frá ríkjum sem þeir skilgreina óvinveitt.Ef stríðið stigmagnast er óttast að Hútar geri árásir á skip í Rauðahafi, sem einnig er mikilvæg siglingaleið.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.