Friðarviðræður í Islamabad hafnar
0
World

Friðarviðræður í Islamabad hafnar

April 11, 2026
RÚV
Scroll

Sendinefndir Írana og Bandaríkjanna komu í morgun til fundar við forsætisráðherra Pakistan í höfuðborg landsins til þess að ræða frið eftir um sex vikna stríð. Öruggt þykir að viðræðurnar verði snúnar. J.D. Vance varaforseti og erindrekinn Steve Witkoff komu fyrir hönd Bandaríkjanna til Islamabad í fylgd kaupsýslumannsins Jared Kushner, sem jafnframt er tengdasonur Trumps forseta.

Friðarviðræður í Islamabad hafnar

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, leiðir sendinefnd þaðan og því ljóst að viðræðurnar eru næstum á hæsta mögulega stigi. Óvíst er hvort leiðtogar sendinefndanna ræðist við augliti til auglitis eða aðeins í gegnum milligöngumenn Shebas Sharifs, forsætisráðherra Pakistans. Skrifstofa hans sagði í morgun að Pakistanar væru stoltir af því að leiða stríðandi fylkingar að samningaborðinu. Íranar segja að hvaða samkomulag sem er yrði að kveða á um að losað yrði um frystar eignir Írana og að Ísrael láti af hernaði sínum gegn Hezbollah í Líbanon. Vance hefur þó sagt að það verði ekki til umræðu á þessu stigi málsins. Það virðist því bera nokkuð í milli, meðal annars hvað viðskiptaþvinganir varðar, Líbanon og opnun Hormússunds. Hvorug sendinefnd fer í grafgötur með að traust sé af skornum skammti. Íranar segjast ganga til viðræðna í algjörri vantrú og forseti íranska þingsins, Mohammad Bagher Ghalibaf, sem er í írönsku sendinefndinni, segir brostin loforð“ vera reynslu Írana af samningaviðræðum við Bandaríkjamenn. Vance sagði, rétt áður en hann steig upp í flugvél á leið til Islamaband, að ef Íranar vildu í einlægni semja, myndu Bandaríkin rétta út sáttahönd. En ætli þeir sér að leika á okkur verða samningamenn Bandaríkjanna síður en svo móttækilegir fyrir því.“ Vopnahléð sem gert var í stríðinu hefur þegar reynst brothætt, ekki síst vegna árása Ísraelshers á Líbanon, sem Íranar og Pakistanar halda fram að núgildandi vopnahléssamningar nái um. Og þótt það kunni að vera góðs viti að stríðandi fylkingar vilji hittast og ræða um frið, má segja að ekki sé mikil von á sögulegum sáttum enn.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More