Friðartillögur á borðinu sem gætu tekið gildi í dag
World

Friðartillögur á borðinu sem gætu tekið gildi í dag

April 6, 2026
RÚV
Scroll

Stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum skoða friðartillögur í stríðinu þeirra í milli sem milligöngumenn kynntu í morgun. Þær eru sagðar geta komið á vopnahléi strax í dag. Reuters greinir frá því að samningamenn frá Pakistan hafi rætt við stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum í nótt og kynnt tveggja þrepa lausn í átt að friði. Tafarlaust vopnahlé yrði gert og síðan sest við samningaborðið.

Friðartillögur á borðinu sem gætu tekið gildi í dag

Samningsdrögin eru einnig sögð kveða á um að Hormússund verði opnað að nýju fyrir skipaflutninga. Ferðir olíuskipa þar um hafa nær alveg stöðvast síðan stríðið hófst og hefur olíuverð rokið upp á heimsvísu í kjölfarið. Þá er imprað á kjarnorkuáætlun Írana í drögunum og væntanlegri tryggingu um að Íranar framleiði ekki kjarnorkuvopn. Öll atriði verður að samþykkja í dag,“ segir heimildarmaður Reuters. Eina samskiptaleið Írana og Bandaríkjanna sé í gegnum Pakistan og mögulega yrði hægt að handsala samning rafrænt þar í gegn í dag. Heimildarmaðurinn segir einnig að Asim Munir, hershöfðingi í pakistanska hernum, hafi verið í sambandi við J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, og Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjaforseta, í alla nótt, auk Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Íran eru sögð ekki hafa brugðist við eiginlegum vopnahléstillögum milligöngumanna í dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti á, samkvæmt dagskrá, að halda sjónvarpsávarp klukkan 17 að íslenskum tíma í dag. Stríðið í Íran og Mið-Austurlöndum öllum hefur staðið í rúman mánuð. Þann 28. febrúar gerðu herir Bandaríkjanna og Ísraels loftárásir á Íran, sem svarað var með árásum á Ísrael og bandaþjóðir Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum. Árásir hafa verið gerðar á nær öll ríki Mið-Austurlanda, einkum og sér í lagi á bandarískar herstöðvar, sendiráð og olíuinnviði hvers konar, sem nóg er af í þessum heimshluta. Ísrael hefur jafnframt háð blóðugt stríð við Hezbollah-samtökin í Líbanon og gert þungar árásir á höfuðborgina Beirút. Almennir borgarar hafa verið drepnir í þúsundatali. Kveikjan að þeim anga stríðsins var árás Hezbollah á Ísrael, sem ætlað var að hefna fyrir drápið á æðstaklerknum í Íran, Ali Khamenei, á fyrsta degi stríðsins.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More