Friðargæsluliði drepinn í Líbanon
0
World

Friðargæsluliði drepinn í Líbanon

April 18, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Líbönsk stjórnvöld fordæma árás á friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í landinu í dag, þar sem franskur hermaður var drepinn og þrír særðir. Þau heita ítarlegri rannsókn og að árásarmönnunum verði refsað. Þetta sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti eftir að hafa rætt við forseta og forsætisráðherra Líbanon.Særðu friðargæsluliðarnir voru fluttir til aðhlynningar.

Friðargæsluliði drepinn í Líbanon

Tveir þeirra eru sagðir þungt haldnir.Macron sagði fyrstu vísbendingar gefa til kynna að Hezbollah-samtökin hefðu ráðist á friðargæsluliðana. Samtökin vísa þeim ásökunum á bug.Forseti líbanska þingsins, sem er hliðhollur Hezbollah, hefur einnig fordæmt árásina.UNIFIL, friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, segir að skotið hafi verið á fólkið meðan það vann að sprengjuleit. UNIFIL ætlar einnig að rannsaka árásina og segir að hún gæti talist stríðsglæpur.Árásir á UNIFIL hafa verið tíðar síðustu misseri samhliða stríði Ísraela við Hamas á Gaza þar sem árásir hafa gengið á víxl við landamæri ríkjanna. Sameinuðu þjóðirnar hafa fordæmt árásirnar og brýnt fyrir báðum fylkingum að virða alþjóðalög.Fingurinn á gikknum“Tíu daga vopnahlé milli Líbanon og Ísrael tók gildi á fimmtudag eftir sex vikna átök. 2.300 liggja í valnum eftir árásir Ísraelshers í Líbanon frá 2. mars. Hezbollah kvaðst hafa hætt hernaðaraðgerðum þegar vopnahléið tók gildi en sagði að fingurinn væri á gikknum, líkt og það var orðað í yfirlýsingu.Ísraelar tilkynntu í dag að þeir ætluðu að skilgreina öryggissvæði, svokallaða gula línu, í sunnanverðu Líbanon líkt og þeir hafa gert á Gaza.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More