0
Franskri ekkju á níræðisaldri sleppt úr haldi ICE
April 17, 2026
Posted 2 hours ago by
Frönsk ekkja á níræðisaldri sneri í dag heim til Frakklands frá Alabama í Bandaríkjunum þar sem hún var handtekin og vistuð í varðhaldsbúðum ICE, tolla- og innflytjendaeftirlits Bandaríkjanna, eftir að eiginmaður hennar lést.Marie-Thérèse Mahé flutti frá Bretagne í Frakklandi til Alabama í fyrra til að giftast æskuástinni sinni, bandaríska fyrrverandi hermanninum Bill Ross.
Þau voru á níræðisaldri og bæði búin að missa maka sína. Parið kynntist upphaflega á sjötta áratugnum þegar Ross gegndi hermennsku í Frakklandi og Mahé var ritari hjá hernum, að því er The Guardian greinir frá. Leiðir þeirra skildu þegar Ross var kallaður heim 1966. Þau gengu bæði í hjónaband og eignuðust börn. 2010 hófu þau samskipti á samfélagsmiðlum og þegar bæði voru orðin einstæð ákváðu þau í fyrra að ganga í hjónaband.Deildu um arfinnRoss lést í janúar og varð Mahé, sem þá bar eftirnafnið Ross-Mahé, því ekkja í annað sinn. Hún kom til Bandaríkjanna í fyrra með 90 daga ferðamannaáritun. Sjö mánuðum eftir komuna var hún handtekin. Ross-Mahé hafði sótt um bandarískan ríkisborgararétt en ekki var búið að afgreiða umsókn hennar þegar maður hennar lést.The New York Times greinir frá því að þar sem Ross hafði ekki útbúið erfðaskrá ætti ekkjan rétt á helmingi eigna hans og synir hans hinum helmingnum. Þær voru einnar hæðar einbýlishús og tveir bílar. Strax daginn eftir að Ross lést komu synirnir og óku burt á bílunum. Hún hefur sakað þá um að fjarlægja aðrar eignir úr dánarbúinu og dómari lagði bann við því að ættingjar seldu eða gæfu muni úr búinu.Handtekin á náttkjólnumTveimur dögum eftir að dómarinn gaf fyrirmæli sín birtust starfsmenn ICE á heimili hinnar tæplega níræðu ekkju og handtóku hana á náttkjólnum. Þaðan var Ross-Mahé flutt í varðhaldsbúðir þar sem ættingjar hennar í Frakklandi náðu ekki sambandi við hana. Sonur hennar sagði í viðtali við AFP-fréttastofuna að hún hefði verið handjárnuð við handtökuna.Sigaði ICE á ekkju pabba sínsDómari segir ljóst að annar sona mannsins, fyrrverandi lögreglumaður, hafi beitt áhrifum sínum til að láta ICE handtaka hana meðan á deilunni um arfinn stóð. Afkomendur Ross-Mahé í Frakklandi lýstu miklum áhyggjum af velferð hennar í haldi ICE. Frönsk yfirvöld blönduðu sér einnig í málið. Jean-Noel Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, staðfesti svo í morgun að Ross-Mahé væri komin til Frakklands. Hann gagnrýndi framferði innflytjendayfirvalda í Bandaríkjunum án þess að nefna mál hennar sérstaklega. Við vitum af ofbeldisverkum sem hafa valdið okkur áhyggjum. Aðalmálið er að hún er komin aftur til Frakklands og því erum við ánægð.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.