Advertisement
Framsókn mælist ekki með mann á þingi
World

Framsókn mælist ekki með mann á þingi

April 2, 2026
RÚV
Scroll

Framsóknarflokkurinn fengi engan mann kjörinn á Alþingi ef gengið yrði til kosninga nú, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Í fyrsta sinn frá 2009 næðu einungis fimm flokkar inn manni og um fjórtán prósent atkvæða dyttu niður dauð, sem jafngældir níu þingsætum.Samfylkingin mælist stærst, með 30 fylgi. Miðflokkurinn er með næstmest fylgi eða tæplega 21.

Framsókn mælist ekki með mann á þingi

Þar á eftir kemur Sjálfstæðisflokkurinn með tæp 20, svo Viðreisn með 10, Flokkur fólksins fengi tæp sex prósent og Framsóknarflokkurinn tæp fimm. Vinstri græn mælast með rúm fjögur prósent. Aðrir flokkar mælast undir þremur prósentum.Næstum 7 myndu skila auðu eða ekki kjósa og rösklega 13 taka ekki afstöðu.Í fyrsta sinn í sautján ár væru einungis fimm flokkar á þingi, miðað við niðurstöður könnunarinnar. Atkvæði fjórtán prósent kjósenda féllu niður dauð, en flokkur með sama fylgi fengi níu þingmenn kjörna.Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um nær tvö prósentustig milli kannana, en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn mælist utan þings. Miðað við könnunina fengi flokkurinn ekki heldur kjördæmakjörna þingmenn.Ríflega 50 þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina.Könnunin var gerð dagana annan til þrítugasta og fyrsta mars. Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? og til vara: Hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More