0
Framkvæmdir á vegum vegna vindmylluflutninga
April 18, 2026
Posted 6 hours ago by
Unnið er að því að breikka og styrkja vegi vegna flutninga á efnivið í vindmyllur fyrir Vaðölduvirkjun. Sums staðar þarf að fjarlægja skilti og ljósastaura, svo að flutningabílarnir komist leiðar sinnar.Styrkja þarf vegi og breikka beygjur svo að hægt sé að flytja efnivið fyrir fyrstu vindmylluvirkjun Íslands í Vaðöldu. Framkvæmdirnar eru á kostnað Landsvirkjunar.Mestu þungaflutningar sem ráðist hefur verið í hér á landi hefjast í næsta mánuði þegar Landsvirkjun flytur vindmyllur frá Þorlákshöfn upp í Vaðöldu, þar sem fyrsta vindmylluvirkjunin á Íslandi rís.
Unnið er að því að breikka og styrkja vegi svo að flutningabílarnir komist leiðar sinnar.Hér eru verktakar á vegum Landsvirkjunar að breikka fyrir það fyrsta vegamótin til þess að þessi löngu farartæki, sem munu fara hér um til að flytja þessa vindmylluparta, svo að þau komist hérna um vegamótin og svo er líka verið að styrkja og breikka hérna kílómeterskafla á Votmúlavegi,“ segir Svanur Bjarnason, verkfræðingur hjá Vegagerðinni.Á myndinni hér fyrir neðan sjáum við akstursleiðina og hvar þarf að breikka vegina; við Nesbraut og Laxabraut í Þorlákshöfn, Suðurstrandaveg, Þorlákshafnarveg, við gatnamót Þorlákshafnarvegar og Eyrarbakkavegar, við Votmúlaveg og Gaulverjabæjarveg, hringtorg að Suðurlandsvegi og Landvegamót. Þá er unnið að endurbótum á stórum kafla á Landvegi og gerð brúar við Helliskvísl.Við þessi vegamót eru bæði ljósastaurar og skilti sem þarf að fjarlægja og þessi skilti verða sett upp á svokallaðar hraðfestingar þannig að það er þá hægt að kippa þeim bara niður að kvöldi og svo þegar flutningurinn er farinn um þá er hægt að henda þeim upp aftur og svo niður aftur næsta kvöld. Ljósastaurarnir munu bara fara upp í lok sumars,“ segir Svanur.Flutningarnir taka um níu vikur og alls verða farnar upp undir fjögur hundruð ferðir. Hver bílalest getur orðið allt að 250 metra löng.Þetta er bara helmingurinn af vindmyllunum sem er að fara núna, svo er gert ráð fyrir öðru eins næsta vor,“ segir Svanur. Breytingar á vegum standa því áfram. Síðan þarf væntanlega að viðhalda þessum vindmyllum í framtíðinni og það þarf að vera hægt að komast um með þessa löngu hluti þannig að það er gert ráð fyrir að það standi áfram.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.