Forskot Arsenal að gufa upp — City vann titilslaginn
0
World

Forskot Arsenal að gufa upp — City vann titilslaginn

April 19, 2026
Scroll

Posted 4 hours ago by

Forskot Arsenal á önnur lið í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta minnkar með hverjum leiknum. Í dag máttu lærisveinar Mikel Arteta þola 2-1 tap gegn Manchester City í uppgjöri toppliðanna tveggja. Forskotið er nú orðið þrjú stig á City leik til góða á topplið Arsenal.Arsenal var með átta stiga forskot 1. apríl og virtist City liðið ekki, og raunar ekkert annað lið, geta ógnað þeim.

Forskot Arsenal að gufa upp — City vann titilslaginn

Síðan þá hefur hallað undan fæti og geta City nú jafnað liðið að stigum þegar liðið sækir fallbaráttulið Burnley heim á miðvikudaginn.Rayan Cherki kom City yfir með afar laglegu marki. Hann lék listir sínar í teignum, hoppaði milli varnarmanna Arsenal og lagði knöttinn í fjærstöngina og inn. Markið kom á 16. mínútu.Arsenal menn voru ekki lengi að jafna og var þar að verki Kai Havertz eftir mistök Donnarumma í marki City. Havertz setti mikla pressu á ítalska markvörðinn sem var alltof lengi að athafna sig í sínum eigin markteig. Havert tæklaði fyrir langsendingu hans og inn fór boltinn. Markið kom á 18. mínútu, örskömmu eftir mark Cherki.City komst svo aftur yfir þegar Haaland kláraði vel úr miðjum teignum. Norski framherjinn fagnaði vel og innilega. Hann sleit sig frá Igor Thiago í baráttunni um markakóngstitilinn og er nú með 22 mörk gegn 21 marki Thiago. Markið kom á 65. mínútu. Að lokum sigldu City menn stigunum þremur heim.Önnur úrslit dagsinsAston Villa 4 - 3 SunderlandEverton 1 - 2 LiverpoolNottingham Forest 4 - 1 Burnley

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More