„Formleg umræða hefur ekki farið fram“
0
World

„Formleg umræða hefur ekki farið fram“

April 16, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, segir enga formlega umræðu um breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum hafa átt sér stað.Breytingin, sem Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra tilkynnti um á fundi Kennarasambands Íslands í gær, hefur verið harðlega gagnrýnd af kennurum.Það er náttúrulega búið að kasta fram einhverjum alls konar hugmyndum í bríaríi og fjölmiðlum og slíkt en formleg umræða hefur ekki farið fram,“ segir Mjöll.Kennarar upplifi sorg og vonbrigðiSíðdegis í dag sendi þing Kennarasambandsins frá sér ályktun þar sem lýst er alvarlegum áhyggjum af framgöngu ráðherra.

„Formleg umræða hefur ekki farið fram“

Þar segir að stöðugleika hafi skort í menntamálum og ráðherraskipti hafi verið tíð en kallað er eftir breyttum vinnubrögðum, meiri vandvirkni og nýjum tón í stefnumörkun stjórnvalda.Ég held að kennarar upplifi sorg og vonbrigði þegar málflutningur er með þessum hætti. Af því að við viljum taka þátt í samtalinu,“ segir Mjöll.Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er skólum skylt að nota bókstafseinkunnir við brautskráningu nemenda. Þá hafa skólar svigrúm til að ákveða fyrirkomulag námsmats. Til að áform ráðherra verði að veruleika þarf að breyta aðalnámskrá og vinna við það er hafin í ráðuneytinu.Það er langt og mikið ferli og það þarf að fara fram fagleg og djúp umræða um slíkt,“ segir Mjöll.Formaður Félags grunnskólakennara segir enga formlega umræðu hafa farið fram sem snúi að breytingu á einkunnagjöf í grunnskólum. Barna- og menntamálaráðherra boðaði breytinguna á fundi Kennarasambands Íslands í gær.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More