0
Fólk fætt eftir 2008 má aldrei kaupa sígarettur í Bretlandi
April 21, 2026
Posted 2 hours ago by
Báðar deildir breska þingsins hafa samþykkt frumvarp sem bannar börnum fæddum eftir 2008, sem í dag eru yngri en sautján ára, að kaupa sígarettur á lífsleiðinni.Frumvarpið, sem nefnist tóbaks- og rafrettufrumvarpið, miðar að því að koma í veg fyrir að þeir einstaklingar sem fæddir eru eftir 1. janúar 2009 byrji nokkurn tímann að reykja.Heilbrigðisráðherra Bretlands, Wes Streeting, segir frumvarpið vera sögulega stund fyrir heilsu þjóðarinnar sem leiða muni til fyrstu reyklausu kynslóðarinnar“ sem hlíft verði við ævilangri fíkn og skaða af völdum tóbaks og nikótíns.Þegar bannið hefur fengið samþykki konungs hefur breska ríkisstjórnin jafnframt umboð til þess að útvíkka reykingabann innandyra til útivistarrýma á borð við leiksvæði barna og svæði fyrir utan skóla og sjúkrahús.Bannið veitir stjórnvöldum einnig heimild til þess að takmarka bragðefni og umbúðir rafretta ásamt því að banna notkun þeirra á stöðum þar sem reykingar hafa þegar verið bannaðar.Rekja má fjórðung allra dauðsfalla til reykingaFrumvarpið er hluti af umfangsmiklu átaki bresku heilbrigðisþjónustunnar.
Því er ætlað að auka fyrirbyggjandi heilbrigðisaðgerðir og að draga úr álagi á bresku heilbrigðisþjónustunni til lengri tíma.Í júní á síðasta ári tilkynnti breska ríkisstjórnin til að mynda bann við sölu á einnota rafrettum. Þær eru gjarnan ódýrar og markaðssettar í litríkum umbúðum sem gera þær vinsælar hjá ungu fólki.Samkvæmt upplýsingum frá bresku heilbrigðisþjónustunni (NHS) má rekja um fjórðung allra dauðsfalla í Bretlandi til reykinga á ári hverju, eða 75.000.Árið 2022 varð Nýja-Sjáland fyrsta ríkið til þess að setja lög af þessu tagi gegn reykingum, sem bannaði sölu sígaretta alfarið til þeirra sem fæddust eftir 2008. Lögin voru þó felld úr gildi með tilkomu nýrrar ríkisstjórnar, innan við ári eftir að þau voru sett.Þá fetuðu Maldíveyjar í fótspor Nýja-Sjálands á síðasta ári og bönnuðu sölu sígaretta til allra sem fæddust eftir 1. janúar 2027.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.