Flytja geðdeildina í miðbæ Akureyrar
World

Flytja geðdeildina í miðbæ Akureyrar

April 10, 2026
RÚV
Scroll

Öll dagþjónusta legu- og göngudeildar geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri flyst í Hafnarstræti, þar sem áður var Heilsugæslan og Læknastofurnar.Mygla greindist á geðdeild Sjúkrahússins í lok síðasta árs. Mikil vinna hefur farið í að finna henni hentugt húsnæði, en það sem fannst er þó aðeins hugsað tímabundið og rúmar aðeins hluta starfseminar, dagþjónustuna.

Flytja geðdeildina í miðbæ Akureyrar

Í raun og veru bindum við miklar vonir við nýbygginguna. Þar sameinast þjónustan á ný en í raun og vera verða krefjandi tímar þangað til og við verðum bara að sjá hvort aðrar lausnir standa til boða á þeim tíma. En það er auðvitað mikil samlegð að hafa þjónustuna á sama stað, bæði upp á samnýtingu starfsfólks og nálægðina við SAk en í bili eru þetta þeir kostir sem við búum við,“ segir Erla Björnsdóttir, settur forstjóri SAk.Þrátt fyrir flutningana er röskun á starfsemi ekki mikil og Erla segir starfsfólk hafa unnið þrekvirki við að standa að þessum flutning án þess að það bitni á starfseminni, nema einn dag. Forgangsmálið hafi verið að tryggja heilsusamlegt vinnuumhverfi:Fyrst og fremst var forgangsmál hjá okkur að tryggja velferð skjólstæðinga og starfsfólks og að koma fólkinu í heilnæmara vinnuumhverfi,“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More