0
Flestir loftgæðamælar á rauðu vegna sandfoks
April 19, 2026
Posted 2 hours ago by
Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu eru slæm og eru flestir mælar á rauðu vegna þessa. Það sem helst veldur er sandfok af Suðurlandi vegna stífrar suðaustanáttar í þurru veðri.Svava S. Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, segir að göturyk blandist einnig við sandfokið, en það sem helst orsaki þessi háu gildi á mælum sé ryk sem kemur annars staðar að.
Hálendinu og söndunum á Suðurlandi. Það sést meðal annars á því að mælir í Garðabæ, sem er fjær stórum umferðaræðum, mælir jafn slæm gildi og hinir sem nær eru meiri umferð.Hún segir allt svifryk, hvort sem er frá umferð eða sandfoki, óæskilegt og geti valdið ertingu í öndunarfærum hjá þeim sem eru viðkvæmir fyrir.Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfis- og orkustofnun, segir aðstæður sem þessar algengar á þessum árstíma. Þegar snjórinn er farinn og þurrt er í veðri. Í þessari vindátt kemur mikið frá Landeyjasandi, en meira og minna sé öll suðurströndin undir og sandarnir þar.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.