Fleiri óánægð en ánægð með ríkisstjórnina
April 7, 2026
RÚV
Mjög hefur dregið úr ánægju með störf ríkisstjórnarinnar á síðustu mánuðum á sama tíma og óánægja með hana hefur aukist. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem Vísir segir frá eru nú fleiri óánægð með störf stjórnarinnar en ánægð. Þetta er í fyrsta skipti sem það gerist.39 prósent lýsa óánægju með störf ríkisstjórnarinnar. Þeim hefur fjölgað um sex prósentustig frá síðustu könnun sem gerð var á fjórða ársfjórðungi síðasta árs og um 18 prósentustig frá því í ársbyrjun 2025, skömmu eftir að ríkisstjórnin tók við völdum.Ánægja með störf ríkisstjórnarinnar hefur minnkað um sex prósentustig milli mánaða og farið úr 42 prósentum í 36 prósent.
Mest mældist ánægjan síðsumars og í haust á síðasta ári þegar 48 prósent voru ánægð með störf ríkisstjórnarinnar.Ekki þarf að koma á óvart að fylgismenn stjórnarflokkanna eru ánægðastir með störf hennar (65 prósent Viðreisnarfólks, 69 prósent stuðningsmanna Flokks fólksins og 80 prósent Samfylkingarfólks) né að mest er óánægjan meðal þeirra sem kjósa stjórnarandstöðuflokkana (78 prósent þeirra sem styðja Miðflokkinn eru óánægð með störf stjórnarinnar, 76 prósent Sjálfstæðismanna og 59 prósent Framsóknarmanna).Meirihluti landsmanna er enn á því að stjórnarandstaðan standi sig illa, samkvæmt könnunum Maskínu. 54 prósent segja hana standa sig illa í nýjustu könnuninni en það hlutfall fór hæst í 62 prósent í fyrravor þegar deilt var um veiðigjald á þingi. Ánægjan með störf hennar stendur þó nokkurn veginn í stað, hefur farið úr tólf prósentum á öðrum ársfjórðungi í fyrra í fjórtán prósent í nýjustu könnuninni.Maskína hefur kannað ánægju fólks með störf ríkisstjórna frá því á fyrsta ársfjórðungi 2021. Ánægja með störf ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks mældist mest á öðrum ársfjórðungi 2021, þá sögðust 46 prósent ánægð með störf hennar, en minnst undir lok kjörtímabils 2024 þegar aðeins 12 og 13 prósent sögðust ánægð með störf stjórnarinnar í tveimur síðustu könnunum. Í lokin sögðust 62 og 63 prósent óánægð með störf þeirrar ríkisstjórnar sem hafði þá setið að völdum í sjö ár.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.