Flæðir yfir vegi í Skagafirði - Varað við leysingum næstu daga
World

Flæðir yfir vegi í Skagafirði - Varað við leysingum næstu daga

April 7, 2026
RÚV
Scroll

Vatn flæðir yfir Siglufjarðarveg í Útblönduhlíð í austanverðum Skagafirði og hefur veginum verið lokað. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru þar að störfum að reyna að losa snjó og klaka úr skurðum við veginn.Verkstjóri hjá Vegagerðinni segir að vatnsmagnið sé slíkt að öruggast hafi verið að loka veginum. Vatnavextir eru þó algengir á þessum slóðum þegar hlánar.Vatn flæðir yfir vegi á Norðurlandi og Vegagerðin hefur lokað vegi um Sauðárkróksbraut að Norðurlandsvegi.

Flæðir yfir vegi í Skagafirði - Varað við leysingum næstu daga

Vegfarendur eru beðnir að fara með gát víðar um Norðurlandið, þar sem snjór bráðnar hratt.Hiti hefur verið í kringum sjö gráður á Norðurlandi í dag og víða hefur safnast mikill snjór undanfarnar vikur. Í dag hefur því tekið að hlána heldur hratt og varar Vegagerðin við því að vatn flæði yfir vegi á nokkrum stöðum á Norðurlandi.Leysingar verða víðar um landið næstu dagaVeðurstofan spáir áframhaldandi hlýindum og leysingum:Veðurspáin gerir ráð fyrir áframhaldandi rigningu og hlýindum á morgun, miðvikudaginn 8. apríl, en síðan skúrakenndu veðri fram að helgi. Búast má við snjókomu eða slyddu í efstu fjallatoppum. Aðstæður verða því áfram hagstæðar fyrir leysingar á vestan-, sunnan- og austanverðu landinu, með mesta úrkomu til fjalla á þessum svæðum, en þurru veðri á norðanverðu landinu. Á norðanverðu landinu má þó líka búast við einhverjum leysingum vegna hlýinda og hnúkaþeys, sérstaklega í dag þriðjudag.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More